




Melhagi 18A
107 Reykjavík
2ja/3ja herbergja íbúð til leigu í 107 Vesturbæ Reykjavíkur
Íbúðin er 86.2 fermetrar á 1. hæð. Sérgeymsla er 4,2 fermetrar og er staðsett í kjallara. Það er hægt að breyta einu herbergi í gott svefnherbergi ef þið eigið barn. Svo íbúðin getur auðveldlega verið tvö svefnherbergi hægt að sjá á myndum.
Við leigjum út 2ja herbergja íbúð, 86,2 fm, á besta stað við Ægisíðu í yndislegu hverfi. Við íbúðina er Kaffi Vesturbær og fallegt bakarí. Sundlaug Vesturbæjar, Melabúðin og Melaskóli eru í um 2 mínútna göngufjarlægð, og það sama gildir um næstu strætóstoppistöð.
Sameiginlegur inngangur. Komið er inn í forstofu. Baðherbergið er flísalagt, eins og eldhúsið, þar sem er mikið skápapláss. Stofan er rúmgóð og björt. Í svefnherbergi er fallegt parket og þrír fataskápar. Seinna svefnherbergið er einnig með fataskáp. Í sameign er sameiginlegt þvottahús sem er lítið notað. Val um hvort húsgögn fylgi með. Allt er mjög snyrtilegt.
Fylgifé
Ísskápur
Geymsla
Þvottavél
Þurrkari
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
27 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 740.000 krInnflutningsverð
1.110.000 kr
Leigt út af Guðmundur Aðalsteinn Sveinsson