




Stigahlíð 24
105 Reykjavík
Til leigu 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í blokk í Stigahlíð.
Íbúðin er 81,3 fm og er mikið endurnýjuð. Hún skptist í forstofu
með harðparket á gólfi og fatahengi. Björt og rúmgóð stofa með harðparketi
á gólfi og útgengi á svalir sem snúa í suðvesturátt. Vel skipulagt eldhús með
vandaðri innréttingu, helluborði, ofni í vinnuhæð og innbyggðri uppþvottavél.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með harðparketi á gólfum og góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er með snyrtilegri innréttingu, sturtu og
handklæðaofni.
Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús, sérgeymsla auk hjóla- og vagnageymslu.
Ný þvottavél með þurrkara tilheyrir ibúðinni og er í þvottahúsinu.
Stutt í verslanir, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Virkilega vel viðhaldin eign sem talsvert hefur verið endurnýjuð á síðustu árum.
Eignin er í toppstandi. Nýmáluð. Hæf til innflutnings strax.
Leiguverð: 360.000. Leigð til eins árs en lengur eftir það ef um semst.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Svalir
Uppþvottavél
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
360.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
31 okt 2026
Leigutímabil
12 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
360.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.080.000 krInnflutningsverð
1.440.000 kr
Leigt út af Guðjón Baldursson