




Jöfursbás 3C
112 Reykjavík
ATH: Allar umsóknir þurfa að berast í gegnum síðuna okkar www.ivera.is - Við tökum ekki á móti umsóknum gegnum igloo.
Glæsileg fjögurra herbergja íbúð í nýbyggingu við Gufunes – laus til leigu í október
Íbúðin er 131,8 fm og staðsett á fjórðu hæð í glænýrri byggingu við Jöfursbás 3C. Þar af er 12,8 fm sérgeymsla. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð, með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og tvennum svölum Gufunesið er einstakt hverfi við strandlengjuna í mikilli uppbyggingu þar sem falleg náttúra og spennandi mannlíf mætast. Svæðið býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar, meðal annars göngu- og hjólaleiðir meðfram sjónum, kajak, sjósund, fargufu og jóga. Íbúðirnar eru vel hannaðar með áherslu á birtu, fallegt útsýni og græn sameiginleg svæði, sannkölluð náttúruparadís í borginn
Nánari lýsing Gengið er inn í forstofu með góðu skápaplássi. Þaðan er komið inn í stórt og opið alrými þar sem eldhús og stofa mynda fallega heild. Eldhúsið er á vinstri hönd og er með eyju og góðu skápaplássi. Úr alrýminu er útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa í vestur.
Á vinstri hönd frá forstofunni tekur við langur gangur. Þar er fyrst komið að baðherbergi með innangengri sturtu og því næst svefnherbergi með fataskáp. Við hlið þess er rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp og útgengi á svalir sem snúa í norðaustur.
Á móti hjónaherberginu er annað baðherbergi með góðu skápaplássi og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara. Við enda gangsins er þriðja svefnherbergið, sem er án fataskáps.
Ísskápur, uppþvottavél og gardínur fylgja íbúð.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 440.000 kr. á mánuði og er verðtryggt samkvæmt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti og rekstur sameignar.
Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn ásamt lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð skal nema þriggja mánaða leigu.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
440.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
440.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.320.000 krInnflutningsverð
1.760.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir