




Laugavegur 5
101 Reykjavík
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Til leigu: Mikið endurnýjuð stúdíóíbúð á 3ju hæð við Laugaveg 5 í 101 Reykjavík. Eignin er skráð 50,3 fm og skiptist í baðherbergi, svefnaðstöðu, eldhús og stofa í opnu rými. Í kjallara er sérgeymsla og þvottahús. Gengið er inn frá porti bakatil. Eignin er með rúmlega 3 metra lofthæð og miðbæjarsjarminn nýtur sín til fullnustu.
Nánari lýsing: Gengið er inn frá porti og upp fallegan tréstiga. Komið er inn í forstofu á 3ju hæð. Gluggar eru eftir endilangri íbúðinni og gefa því góða birtu. Íbúðin var mikið endurnýjuð. Svefnherbergi er ekki lokað en útbúið á snyrtilega máta þannig að hluti af vegg nýtist sem fatahengi. Baðherbergi hefur verið snyrtilega endurnýjað með sturtu. Eldhús er glæsilegt og með eldunareyju. Ofn í vinnuhæð. Ísskápur í innréttingu. Vaskur í borðplötu. Stofa snýr út að Laugavegi með stórum gluggum.
Sjón er sögu ríkari!
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og rúmgóð sérgeymsla sem fylgir íbúðinni.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
Leigutímabil
6 - 10 mánuðir
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 740.000 krInnflutningsverð
1.110.000 kr
Leigt út af Jason Kristinn Ólafsson