




Mánatún 1
105 Reykjavík
Björt og frábærlega staðsett, 2-herbergja fullbúin íbúð, laus frá 20 október til lok júní 2027, mögulega lengur. Kæmi einnig til greina að leigja í styttri tíma innan þessa tímabils.
Frábær staðsetning: Krónan, bakarí, apótek, mathöll og veitingastaðir eru í 2-3 mínútna göngufjarlægð auk Borgartúns og miðbær Reykjavíkur og Laugardalslaug eru í 15 mínútna göngufjarlægð. Þrír leikvellir fyrir börn eru innan eða rétt utan lóðarmarka hússins.
Íbúðin er í friðsælli blokk, á 2. hæð með lyftu. Í henni eru:
- Tvö svefnherbergi (eitt með hjónarúmi og annað með 120cm rúmi)
- Eitt baðherbergi
- Þvottahús með þvottavél og þurrkara
- Opið eldhús og stofa
- Svalir. Einkabílastæði í kjallara fylgir íbúðinni (ekki með hleðslustöð) Geymsla fylgir ekki íbúðinni.
Íbúðin er kjörin til dæmis fyrir fjölskyldufólk og aðila sem starfa á svæðinu, svo sem í Borgartúni. Dagsetningar eru umsemjanlegar. Íbúðin er fullbúin með húsgögnum, heimilistækjum og innbúi. Innifalið í leigu er hiti, rafmagn og net. Aðilar sem reykja koma ekki til greina og ekki má vera með gæludýr í íbúðinni.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
355.000 kr
7 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
20 okt 2026
Leigutímabil
1 - 10 mánuðir
Fyrsti mánuður
355.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 710.000 krInnflutningsverð
1.065.000 kr
Leigt út af Esther Hallsdóttir