




Eskiás 8C
210 Garðabær
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu Íveru www.ivera.is Einstaklega björt og falleg þriggja herbergja íbúð laus til leigu
Velkomin inn í vel skipulagt 71,2 fm heimili á annarri hæð að Eskiás 8, Garðabæ. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing Gengið er inn í íbúðina í forstofu með fataskáp. Úr forstofunni er gengið inn í eldhúsið sem er bjart og fallegt með eyju. Stofa og eldhús mynda eitt opið rými með útgengt út á svalir úr alrýminu. Í eigninni eru tvö svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergið með rúmgott með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp. Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 365.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign. Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Fylgifé
Ísskápur
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
365.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
5 jún 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
365.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.095.000 krInnflutningsverð
1.460.000 kr

Leigt út af María